|
|
01.08.2008 10:48:54 / skjátan
... af mér eru á hinu blogginu mínu og ætla ég að hafa það þannig eins og staðan er núna. Þið sem eruð forvitin verðið bara að vera ófeimin við að biðja um lykilorðið. http://www.skjatan.blog.is Hafið það gott
»
13.06.2008 12:28:15 / skjátan
Díses hvað ég er ekki að trúa því hvað ég er gjörsamlega búin eftir vinnuna. Er svoleiðis búin eftir nokkra tíma vinnu og að drepast í skrokknum. Ætla að fara í sveitina núna um helgina og get ekki beðið eftir að komast í slökun þar. Þó það sé kannski ekki mikil slökun í rauninni en samt er ekki borgar stressið í gangi þar sem betur fer. Þetta verður bara stutt núna, er ekki í stuði til að skrifa. Hafið það gott
»
05.06.2008 17:19:58 / skjátan
Já ég er ekki frá því að ég sé aðeins forvitin um það hverjir eru hérna á vappi. Er að velta því fyrir mér að læsa hérna eins og hinn staðurinn minn er og gefa lykilorðið bara því þá veit ég allavega hverjir eru að kíkja á mig. Eða sleppa þessari alveg, er ekki alveg viss en þætti gaman ef fólk myndi skilja eftir sig merki hérna kannski næstu daga. En ég er annars hálfnuð núna, komin rúmar 20 vikur og var í sónar í gær og það er lítil dama á leiðinni  Það eru sónarmyndir á hinni síðunni minni og ég set þær líka á síðuna hans Óðins Arnar en á það reyndar eftir. Ef fólk vill sjá þessar myndir verður það að hafa samband við mig eða óska eftir lykilorðinu á hinni síðunni eða síðunni hans Óðins Arnar. Jæja, nennan er að minnka, er að fara norður um helgina og tek með mér eins mikið af kössum og ég kem í bílinn og þarf að finna eitthvað af barnafötum og fara að spá aðeins í þessu barnadóti mínu því ekki fer ég minnkandi  Nennan búin, later folks...
»
20.05.2008 12:42:06 / skjátan
Já ég er á lífi, bara búin að vera löt hérna undanfarið. En ég er komin 18 vikur í dag og það er allt svipað, ég er ekki að vinna útaf grindinni o mér er ennþá óglatt á kvöldin  Hefði haldið að það ætti að vera búið en það er greinilega ekkert 100% í þessum málum. Ég er búin að vera fyrir norðan og það hefur verið gott að vera laus við stressið í bænum. Mér finnst alveg best samt að þegar ég er þar að þá langar mig ekki í eitthvað nammi og þannig rusl á öllum tímum sólarhrings og þar spilar inní að það er ekki opið allan sólarhringinn eins og í bænum þar sem allt er opið alltaf, nema rétt á jóladag. Ferlega fyndið hvað ég er fljót að stimpla mig inní það að það er ekki allt opið og ég væri til í að sjá hvernig fólk hér á höfuborgarsvæðinu myndi lifa það af ef að það yrði tekið upp á að loka búðum á sunnudögum og hátíðisdögum, eins og það var hérna fyrir 10 árum síðan. Ég man ekki betur en að fólk hafi alveg lifað það af. En nennan er að fjara út, reyni að muna eftir þessu bloggi eins og nennan leyfir. Later...
»
29.04.2008 20:11:27 / skjátan
Já tíminn líður og líður, ég er komin 15 vikur í dag. En það er samt ekki þar með sagt að ógleðin sé búin og allt í djollí bara, ónei. Kastaði aðeins upp á sunnudaginn og er alltaf slæm á kvöldin og þarf að taka ógleðilyfið ennþá. Og grindin, díses kræst. Ég er vaggandi um eins og hölt hæna  Er samt komin í sjúkraþjálfun og ég þarf eitthvað að breyta vinnunni hjá mér, það gengur ekki upp að vera bílstjóri þegar maður má ekki lyfta neinu  Það er allavega í skoðun alltsaman, ég á toppyfirkonu sem er að hjálpa mér og það kemur í ljós á næstu dögum hvað verður. En íbúða málin eru ekki í neitt spes farvegi, var nánast komin með loforð um íbúð en svo var eitthvað ves með það þannig að það er ekkert öruggt ennþá. Ég er allavega búin að tala við nokkra og sótti um íbúð hjá sveitarfélaginu en þar er ekkert laust þannig að þetta verður bara að koma í ljós. En var ekki örugglega sumardagurinn fyrsti í síðustu viku?  Ég fór norður í blíðu veðri á miðvikudaginn í síðustu viku og var í sveitinni með Óðni mínum og famyliunni þangað til á sunnudagskvöldið og það var allt hvítt á laugardeginum, Ásgeir keyrði norður á laugardaginn og þá var mjög hált á Holtavörðuheiðinni og hann bara lúsaðist þar yfir. Svo á sunnudagskvöldinu þá var smá hálka sunnan meginn í heiðinni og snjór á smá kafla, var samt óvenju lítið stressuð þrátt fyrir að bifræðin væri búin sléttum sumardekkjum þar sem Andri var undir stýri. Og svo átti Óðinn að fara til tannsa á morgunn, er búin að fresta því oftar en einu sinni í vetur þar sem það er svo oft búið að vera leiðinlegt veður þegr hann hefur átt tíma og ég var aftur að breyta tímanum hans því það er hálka og skafrenningur á heiðinni og frekar hvasst undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi. Ég reyndar nýti tímann í staðinn þar sem ég hef brotið uppúr tönn í gær án þess að taka eftir því, ég man allavega ekki eftir því  En það er nú ekkert að marka það því ég man nánast ekkert þessa dagana, þyrfti helst að vera með minnisbók á mér til að skrifa hlutina í því á man ekkert þó mér hafi verið sagt eitthvað fyrir 5 mínútum. Ég kenni óléttumistrinu um það og geri mér grein fyrir að þetta er ekkert að fara að lagast neitt á næstunni. Það verður bara að hafa það. Jæja, nennan er búin... Later....
»
22.04.2008 19:55:49 / skjátan
Djöfulli þoli ég ekki fólk sem keyrir utaní bíla og stingur svo af Það semsagt hefur eitthver hálfvitinn keyrt á bílinn minn í dag og stungið af og hvorki skilið eftir miða né tilkynnt það til lögreglu  Þannig að núna er framstuðarinn með rispu þvert yfir númeraplötunni með smá dash af rauðu í  Og það eru tæp tvö ár síðan skipt var um stuðarann og hann sprautaður ásamt vinstra frambretti. Þá var keyrt á hann á bílastæðinu uppí vinnu en þá var það yndisleg heiðarleg kona sem hringdi strax í mig og við gerðum skýrslu og allt í orden  Ég viðurkenni reyndar alveg að ég varð ferlega sár og fúl því ég hafði þá kvöldinu áður eytt góðum tíma í að þrífa og bóna bílinn og setja álfelgusumartútturnar undir og ætlaði að rúlla með bílinn í skoðun en gat það ekki því það brotnaði líka ljós þá. En kannski er þetta eitthvað karma í gangi, ég var að setja álfelgusumartútturnar undir í gær, eða eiginlega meira Andri, þar sem ég má ekki gera neitt. Kannski bara spurning um að keyra bara á naglatúttunum allan ársins hring og athuga hvort bíllinn haldist heill  Ohh well, þá er þetta orðið gott og skapið í mér betra  Og ég þurfti ekki að garga á neinn  Hafið það næs folks, sumarið er alveg að detta inn 
»
21.04.2008 01:06:59 / skjátan
Er ekki alveg eðlilegt að fara í tölvuna þegar maður getur ekki sofið? Átti í smá ástarsambandi við skúringarmoppuna og tuskur hérna í dag og mér hefnist svona allsvakalega fyrir það að ég er gjörsamlega að farast úr verkjum í grindinni  Já svona bæðevei, þá er semsagt grindargliðnun komin á listann yfir það sem er komið núna enn var ekki þegar ég gekk með Óðinn. Þetta verður eitthvað skrautlegt, get varla unnið lengur og er rétt að detta í 14. viku. Held samt að þetta sé orðið gott, ætla að athuga hvort ég geti ekki komið mér vel fyrir og sofnað. Hafið það gott.
»
15.04.2008 11:33:26 / skjátan
Jamm, þá er það alveg obinbert. Ég er ólétt og á að eiga í október, er sett 21. Er búin að ákveða að halda samt í mér og eiga 26. okt sem er afmælisdagur mömmu minnar, væri alveg töff ef ég myndi eignast barn á afmælisdeginum hennar þar sem hún átti mig á afmælisdegi ömmu  Ég fór í gær í hnakkaþykktarmælinguna og Begga mín kom með mér, sem betur fer því ég hefði ekki ratað með góðu móti fósturgreiningardeildina og þangað sem ég fór í blóðprufuna . Það kom allt rosa vel útúr mælingunni en það er ekki komið útúr blóðprufunni ennþá en miðað við hvað sónarinn kom vel út þá hef ég ekki einar einustu áhyggjur af neinu.
Og ég er að gera þetta ein aftur. Eða allavega ekki með barnsföðurinn mér við hlið. Begga mín er svo mikið yndi og Gúndi líka að þau eru búin að bjóðast til að koma með mér í þær skoðanir sem ég vil hafa einhvern með mér. Og ef að mamma verður í bænum akkúrat þegar það er skoðun þá kemur hún með mér. Við Andri vorum nýlega búin að tala um að slíta því sem eftir var af okkar haltu mér-slepptu mér rugli þegar ég komst að því að ég væri ólétt. Hann hefur engan áhuga á að vita eitt né neitt í sambandi við meðgönguna og hefur ekki einu sinni spurt hvernig hafi gengið í gær.
En eníhú, þá er þetta orðið opinbert.
Later folks...
»
03.04.2008 23:16:31 / skjátan
... eftir að kynlífi lýkur!
Hrútur : Ok, gerum það aftur!
Naut : Ég er svöng - pöntum pizzu.
Tvíburi : Veistu hvar fjarstýringin er?
Krabbi : Hvenær giftum við okkur??
Ljón : Var ég ekki frábær??
Meyja : Ég verð að þvo rúmfötin núna.
Vog : Mér fannst þetta gott ef þér fannst þetta líka.
Sporðdreki : Hef fengið það betra sko.
Bogmaður : Ekki hringja í mig - ég hringi í þig.
Vatnsberi : Gerum það aftur núna í engum fötum!
Fiskur : Hvað sagðistu annars heita?
Steingeit : Áttu nafnspjald?
Hvað segiði - er eitthvað til í þessu?
»
01.04.2008 17:56:13 / skjátan
Jeminn eini hvað ég er eitthvað vitlaus þessa dagana  Ég og mamma vorum að spila og ég var svo að reikna stigin en ég gat það bara ómögulega, er algjörlega bara vitlaus eiginlega núna  En það er eiginlega alveg gild ástæða fyrir því, segi síðar hvað það er. Og svo er "litla" barnið mitt orðinn 6 ára  Ekkert smá hvað tíminn líður hratt, ég verð búin að ferma áður en ég veit af  Mamma spurði hann hvort hann héldi að hann fengi skegg þegar hann yrði 6 ára og hann var ekki lengi að svara að þá yrði hann bara 6 ára með skegg í skóla  Hann er frekar skondinn drengurinn í svörum þegar hann tekur sig til. Jæja pæja, best að fara að gera eitthvað af viti í vinnunni. Hafið það gott gott fólk.
»
27.03.2008 15:05:40 / skjátan
Ég fékk þetta í maili og ákvað að skella þessu hérna inn líka.
hæ hæ allir saman, VÍRUS, VÍRUS. Viðvörun til allra sem þú þekkir. Ef þið fáið Powerpoint tölvupóst sem heitir 'Welcome to the matri ps..' þá megið þið alls ekki opna hann. Þar kemur fram mynd í 10 sek. og síðan birtist texti 'You're harddrive is over' og þá er það bara of seint, allt er horfið úr tölvunni.Þetta er nýtt vírus prógram sem var hannað af frönskum aðila sem kallar sig Nwin Sendu þetta áfram til alla.
Það er eins gott að passa sig á að opna ALDREI neitt frá neinum sem maður þekkir ekki.
Viðvörun lokið.
»
22.03.2008 13:54:35 / skjátan
Jebb hann Óðinn minn gataði sig í gær með hjálp Jóhanns Inga frænda síns  Þeir voru í sínu mesta sakleysi að kasta klökum á milli sín þegar Óðinn fékk einn í andlitið, augabrúnina vinstra meginn og það kom þessi fíni skurður. Svona eins og skeifa í laginu, ferlega smart  Og þeir komu hérna hlaupandi inn, ég og mamma vorum að spila í rólegheitum og ég heyrði bara smá væl, ekkert mikið og hélt að Jóhann hefði bannað honum að gera eitthvað og það væri klögustund í aðsigi, en sá þá blóð og panikkaði "pínu" og sagði mömmu að núna þyfti að sauma hann og varð svona hálf móðursjúk í hálfa mínútu eða svo  En mamma er svoddan hjúkka (löggan á Blönduósi samþykkir það) að eftir að við vorum búnar að þrífa mesta blóðið þá náði hún í sjúkrakassann sinn og fann þar plástur til að líma á drenginn, náði að loka skurðinum vel og svo var sett smá grisja yfir og þegar þetta var búið þá fór stráksi aftur út og fór að klára að gefa hestunum með afa sínum  Ótrúlegur þessi drengur. Annars hef ég það bara kozy í sveitinni, var geggjað að koma á miðvikudaginn eftir stutta vinnuviku. Næsta vinnuvika verður kvöldvaktavika allavega þrjú kvöld og ég er ekki alveg búin að ákveða hvernig ég vinn föstudaginn. Nóg af rausi í bili, hafið það gott gott fólk.
»
19.03.2008 11:17:18 / skjátan
Fyrir nokkrum árum hélt læknir fram hjá konu sinni með hjúkrunarfræðingi. Ekki leið á löngu þar til hjúkkan varð ófrísk. Læknirinn gat ekki hugsað sér að upp kæmist um framhjáhaldið, lét hann því viðhaldið hafa fjárfúlgu og bað hana að fara til meginlands Evrópu og eiga barnið þar. Hvernig get ég látið þig vita,þegar barnið fæðist?” spurði hjúkkan. Sendu mér bara póstkort og skrifaðu “spaghetti” á það. Ég skal svo borga allan brúsann.” Konan flaug til Ítalíu og segir ekki frekar af ferðum hennar. En sex mánuðun seinna hringir eiginkona læknisins á stofuna til maka síns og segir: “Elskan, þú fékkst svo skrítið póstkort í dag. Það kemur frá Ítalíu, en ég fæ engan botn í það sem í því stendur.” “Hafðu engar áhyggjur af því, ástin mín. Ég skoða kortið þegar ég kem heim.” Læknirinn kom heim um kvöldmataleitið, las kortið og féll að því búnu í gólfið með hjartaslag. Sjúkrabíll kom á staðinn og flutti lækninn með forgangi á spítala. Eiginkonnunni varð að sjálfsögu mjög brugðið og einn úr áhöfn bílsins varð eftir til að hugga hana. Hann spurði hana hvað gæti hafa orðið manni hennar um megn. Konan tók upp póstkortið og las: “Spaghetti, spaghetti, spaghetti. Tvö með pylsu og kjötbollum og eitt án.”
»
08.03.2008 11:30:10 / skjátan
Að vera vöknuð fyrir hádegi á laugardegi og vera búin að sofa nánast í 11 tíma. Samt kannski ekki skrítið, ég er búin að vera veik og er aðeins að jafna mig þannig að ég átti þennan ljúfa svefn alveg inni. Lítið að frétta, ég veit ekki alveg ennþá hvenær íbúðin á Hvammstanga losnar en það á að vera komið nokkurnveginn á hreint í næstu viku. Annars hef ég ekki miklar áhyggjur af því, fer bara í sveitina ef hún verður ekki laus í ágúst. Ég ætla samt að leiðrétta aðeins, mamma mín var ekkert og er ekkert vond, fann þessa rumsu á barnalandi, hvar annarsstaðar. Ég á BESTU mömmu í heimi bara svo það sé alveg á hreinu  Nenni ekki meir, þangað til næst, hafið það gott.
»
26.02.2008 21:25:19 / skjátan
Var mamma þín vond?
Mín var Það !
Við áttum verstu mömmu í heiminum! Þegar aðrir krakkar borðuðu nammi í
morgunmat fengum við hafragraut.
Þegar aðrir krakkar fengu pepsí og súkkulaði fyrir hádegismat fengum við
samlokur.
Og menn geta bara rétt ímyndað sér hvað hún gaf okkur í
kvöldmat,allskonar MAT.
Mamma vildi alltaf vita hvar við vorum, ALLTAF,það hefði mátt halda að
við værum í fangelsi. Hún vildi vita hverjir voru vinir okkar og hvað
við vorum að gera með þeim. Hún krafðist þess ef við segðumst ætla að fara
eitthvað í klukkutíma þá væri það aldrei meira en klukkutími.
Þegar það var FRÍ í skólanum þurftum við að vinna. Við að þvo diskana,
Búa um rúmin, læra að elda ,þvo þvottinn og annast önnur leiðinleg störf.
Við héldum að hún lægi vakandi á nóttunni bara til að pæla út hvað hún ætti
Að láta okkur gera daginn eftir. Hún lét okkur alltaf segja sannleikann,
allann sannleikann og ekkert nema sannleikann.Þegar við vorum unglingar,
gat hún lesið hugsanir okkar. Þá var lífið ERFITT.
Þegar allir fengu að fara á djammið og skemmta sér 12 eða 13 ára, fengum
við ekki að gera neitt fyrr en við vorum 16.ára. Mömmu vegna misstum við
af fjölda mörgu og miklu sem aðrir krakkkar gerðu. Ekkert okkar hefur
verið tekið fyrir að stela úr búðum,eyðileggja fyrir öðru fólki eða
verið tekið fyrir nokkurt afbrot af neinu tagi. ALLT henni að kenna. Við urðum
aldrei full,kunnum ekki að reykja, fengum ekki að vera úti allar nætur
og misstum því af að gera svo fjölmargt sem unglingar annars fá að gera.
Á sunnudögum þurftum við að fara í kirkju, og misstum aldrei af messu.
Núna erum við flutt að heiman. Guðhrædd, menntuð og gott fólk.Við gerum
okkar besta að vera vondir foreldrar eins og mamma okkar var.
Ég held að það sem er að í heiminum í dag sé að Það er bara ekki nóg af
vondum mömmum lengur.
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
Heimsóknir
Í dag: 6 Alls: 28290
Dagatal
| febrúar - 2012 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | | | 1 | 2 | 3 | 4 | | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | | 26 | 27 | 28 | 29 | | Fyrri | Næsti |
|